Fögnum afmæli Akureyrarkirkju, en hún var vígð 17. nóvember 1940.
Sunnudaginn 15. nóvember verður sunnudagaskóli og hátíðarmessa.
Sunnudagaskóli í Akureyrarkirkju kl. 11.00. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur. Umsjón Tinna Hermannsdóttir, Hermann Óskar Hermannsson og Guðný Alma Haraldsdóttir.
Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju kl. 14.00. Gísli Gunnarsson Hólabiskup prédikar. Kór Akureyrarkirkju og Eldri barnakór Akureyrarkirkju syngja. Stjórnendur eru Þorvaldur Örn Davíðsson og Guðný Alma Haraldsdóttir. Organisti er Pétur Nói Stefánsson. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, sr. Aðalsteinn Þorvaldsson og sr. Jóhanna Gísladóttir þjóna fyrir altari.
Fjáröflunardagur Kvenfélags Akureyrarkirkju er þennan sama dag og hefst í Safnaðarheimilinu strax að hátíðarmessu lokinni. Seldir verða lukkupakkar, kr. 1000 stykkið, og glæsilegt kaffihlaðborð, kr. 2500 en kr. 1500 fyrir 6-18 ára. Enginn posi á staðnum en hægt að leggja beint inn á reikning kvenfélagsins.