Fjölskyldustund kl 11:00, Sunnudaginn 16.janúar í streymi.

Fjölskyldustund verður streymt frá Akureyrarkirkju sunnudaginn 16.janúar. 

Hægt verður að horfa á stundina á facebooksíðunni: Viðburðir í Akureyrarkirkju - beinar útsendingar. 

Stundin hefst klukkan 11:00 og er um 30 mínútna löng.

Söngur, biblíusaga og brúðuleikrit verða á dagskránni. 

Umsjón hafa: sr. Stefanía Steinsdóttir, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti, Sonja Kro æskulýðsfulltrúi og Hólmfríður Hermannsdóttir gítarleikari.