Fermingarfræðsla og fermingardagar vorsins 2021

Opnað verður fyrir skráningu í fermingarfræðslu veturinn 2020-2021 hér á síðu Akureyrarkirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 10.00. 
Við vekjum athygli á að mikilvægt er að skrá fermingarbörnin (árg. 2007) sem fyrst þó ekki sé búið að ákveða fermingardaginn, svo hægt sé að koma upplýsingum til foreldra í tölvupósti varðandi upphaf fræðslunnar í haust.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið gyda@akirkja.is eða hringja í síma 462-7700 milli kl. 9.00 og 13.00 virka daga. Gyða Hrönn Sigþórsdóttir, ritari kirkjunnar, annast skráningar.