Fermingarbörn safna fyrir vatni

Þessa viku taka fermingarbörn um land allt þátt í söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og ganga í hús með söfnunarbauk í hönd og safna fyrir vatnsverkefnum í Eþíópíu. Fermingarbörn í Akureyrarkirkju gengu í hús síðastliðinn þriðjudag og gekk söfnunin vel. Alls söfnuðust kr. 239.797.
Takk fyrir að taka vel á móti börnunum og styðja þetta góða málefni.