Barnakórastarfið hefst 8. september

Frá tónleikum í Hörpu sl. vor
Frá tónleikum í Hörpu sl. vor

Æfingar kóranna verða á fimmtudögum í vetur. Yngri barnakór (2. - 4. bekkur) æfir kl. 14.00-14.50 og Eldri barnakór (5. - 10. bekkur) æfir kl. 15.00 – 16.00 í kapellu kirkjunnar. Þorvaldur Örn Davíðsson stjórnar kórunum fram að aðventunni. Hann er fullur af orku og góðum hugmyndum svo þetta verður óvenju skemmtileg önn. Skráning fer fram rafrænt á heimasíðu Akureyrarkirkju Skráning í kórastarf | Akureyrarkirkja og svo má líka senda póst á thorvaldurorn@akirkja.is. Þátttaka í barnakórastarfinu er ókeypis.