Akureyrarkirkja leitar að organista í fullt starf

Akureyrarkirkja auglýsir laust til umsóknar starf organista. Um er að ræða 100% stöðu. Við Akureyrarkirkju starfar mjög öflugur kór, safnaðarstarf er fjölbreytt og messað er hvern helgan dag.

Hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða háskólamenntun í kirkjutónlist og hafi reynslu og þekkingu á kórstjórn. Menntun á sviði kórstjórnar er kostur.
  • Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum og hefur vilja til að starfa af metnaði með prestum, starfsfólki og sjálfboðaliðum með það að marki að efla og styrkja tónlistarstarf Akureyrarkirkju.
  • Nánari starfslýsing mun fylgja starfssamningi.

Helstu starfsskyldur organista:

  • Er tónlistarstjóri kirkjunnar, ber ábyrgð á tónlistarstarfi hennar og heldur utan um bókanir og skiplag vegna tónleikahalds.
  • Leikur undir í helgihaldi, athöfnum og öðru safnaðarstarfi.
  • Stjórnar Kór Akureyrarkirkju og starfar með stjórn kórsins.
  • Hefur umsjón með hljóðfærum kirkjunnar og styður við safnaðarstarf og helgihald í samstarfi við presta, sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar.

Launakjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO.

Umsóknarfrestur er til 10. júní næstkomandi en starfið veitist frá 1. janúar 2027.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hjörtur Narfason, formaður sóknarnefndar, í síma 823-2209, soknarnefnd@akirkja.is

Umsókn skal skilað rafrænt á soknarnefnd@akirkja.is eða beint í Akureyrarkirkju, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri.