Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar

Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, sunnudaginn 3. apríl, um kl. 12.oo að lokinni messu í kirkjunni.

Dagskrá fundarins:

  1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningar sóknarinnar lagðir fram til afgreiðslu.
  3. Gerð grein fyrir starfsemi kirkjugarða Akureyrar fyrir s.l. ár.
  4. Greint frá starfsemi héraðsnefndar og héraðsfundi.
  5. Kosning sóknarnefndarmanna og jafnmargra varamanna til 4ra ára.
  6. Kosning tveggja skoðunarmanna og varamanna þeirra til árs í senn.
  7. Kosning í aðrar nefndir og ráð.
  8. Önnur mál.

    Sóknarbörn eru hvött til að mæta.
    Sóknarnefnd Akureyrarsóknar.