Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar

Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju sunnudaginn 24. apríl kl. 12.00 eða strax að messu lokinni. 

Dagskrá fundarins: 

  1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningar sóknarinnar lagðir fram til afgreiðslu.
  3. Gerð grein fyrir starfsemi Kirkjugarða Akureyrar fyrir s.l. ár.
  4. Greint frá starfsemi héraðsnefnda.
  5. Önnur mál.

 Sóknarbörn eru hvött til að mæta.

 Sóknarnefnd Akureyrarsóknar