Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar

Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn í fundarsal Safnaðarheimilis Akureyrarkirkju sunnudaginn 28. apríl kl. 9:30.
Dagskrá fundarins:
1. Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
2. Ársreikningar sóknarinnar lagðir fram til afgreiðslu ásamt fjárhagsáætlun næsta árs.
3. Gerð grein fyrir starfsemi Kirkjugarða Akureyrar fyrir s.l. ár.
4. Greint frá starfsemi héraðsnefnda.
5. Kosningar
6. Önnur mál.
Sóknarbörn eru hvött til að mæta.
Sóknarnefnd Akureyrarsóknar.