Sumartónleikar í Akureyrarkirkju kl. 17.00
19. júlí kl. 17:00-18:00
Allir
Akureyrarkirkja
Tónleikar í Akureyrarkirkju sunnudaginn 19. júlí kl. 17.00.
Aðgangur er ókeypis og tekið við frjálsum framlögum.
Zingara er yfirskrift tónleika Tríós Öræfa ásamt Arnaldi Arnarsyni á afmælisári Sumartónleika í Akureyrarkirkju, en þeir eru þriðju tónleikarnir á hátíðinni í ár.
Tríó Öræfi er skipað Sóleyju Þrastardóttur þverflautuleikara, Þórunni Ósk Harðardóttur víóluleikara og Ásdísi Arnardóttur sellóleikara. Ásamt Arnaldi Arnarsyni gítarleikara flytur tríóið verk eftir Josef Kreuzer, Franz Schubert/W. Matiegka og Nicolo Paganini. Auk þess frumflytja fjórmenningarnir nýtt verk eftir Oliver Kentish, sem pantað var í tilefni 40 ára afmælis Sumartónleika í Akureyrarkirkju!
Hljóðfærasamsetningin er óvenjuleg, og gefst ekki alloft tækifæri til að heyra samspil þessara fjögurra hljóðfæra. Í tónverkunum njóta raddir hljóðfæranna sín sérlega vel og gefst hér því kjörið tækifæri að heyra tónlist sem ekki er á boðstólum dag hvern.
Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Hérðassjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.