Sumartónleikar í Akureyrarkirkju kl. 17.00

Alexander Smári Edelstein leikur á píanó ýmsa hápunkta klassískra píanóbókmennta. Verk eftir J.S. Bach, F. Schubert, L. v. Beethoven og F. Chopin, sunnudaginn 20. júlí kl. 17.00 í Akureyrarkirkju.

Aðgangur er ókeypis og tekið við frjálsum framlögum.
Öll hjartanlega velkomin!
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Menningarsjóður Akureyrarbæjar, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis og Menningarsjóður KEA styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.