Sumartónleikar í Akureyrarkirkju kl. 17.00

Markus Rupprecht mun hefja tónleikaröðina Sumartónleikar í Akureyrarkirkju sunnudaginn 7. júlí kl 17:00.
Markus er fæddur árið 1981 en hann útskrifaðist frá tónlistarskólanum í Regensburg og er með gráður frá Piteå í Svíþjóð og Vín í Austurríki, þar sem hann nam kirkjutónlist, orgel og hapsíkord með Michael Radulescu, Hans-Ola Ericsson og Stefan Baier.
Hingað til hafa tónleikaferðir hans ekki aðeins náð til Evrópu, þ.e. Þýskalands, Austurríkis, Skandinavíu, Spánar, Portúgals, Tékklands og Búlgaríu heldur einnig til Mexíkó, Kúbu og Rússlands.
Markus hefur einnig reynslu af því að vinna með atvinnu kórum og sönghópum. Skynbragð hans á tjáningu hvers einasta tóns og fumlaus tækni við leik á hljóðfærið gerir honum kleift að láta orgelið hljóma kraftmikið en næmt á sama tíma.
Á efnisskránni verða flutt orgelverk eftir til dæmis Bach, Mozart, Georg Böhm og fleiri.

Aðgangur er ókeypist og allir hjartanlega velkomnir.

Tónleikaröðin er styrkt af KEA, Akureyrarstofu, Akureyrarbæ og er partur af Listasumri á Akureyri.