Fermingarfræðsla veturinn 2023-2024


Við þurfum hér að fá upplýsingar um báða foreldra barns ef það á við







Skráning í fermingarfræðslu Akureyrarkirkju og upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga.

Akureyrarkirkja starfar á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, annarra skyldra laga, reglugerða og starfsreglna Kirkjuþings sem eiga sér stoð í lögum. Þegar um ræðir vinnslu persónuupplýsinga fylgir Akureyrarkirkja lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Í tengslum við fermingar eru persónuupplýsingar unnar sem liður í lögmætri starfsemi og/eða á grundvelli samþykkis viðkomandi. Þær upplýsingar sem hér er safnað eru jafnframt skráðar í prestsþjónustubók, lögum samkvæmt. Með skráningu og þátttöku í fermingarfræðslu heimilar forráðamenn fermingarbarns skráningu og meðferð/vinnslu upplýsinga sem fer fram vegna fermingarinnar og er í eðlilegum tengslum við hana, þar með talið upplýsingar um fermingarbarnið sjálft og upplýsingar sem eðlilegt er að séu aðgengilegar, eins og hverjir séu forráðamenn þess.
Samþykki þetta gildir meðan það er ekki afturkallað.