Fermingarfræðsla - söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar kl. 17.00-19.00

Fimmtudaginn 6. nóvember nk. ganga fermingarbörn í hús og safna fé í Vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Eins og undanfarin ár væntum við þess að fermingarbörnin mæti hress og kát til starfans.  

Fimmtudagurinn 6. nóvember

Mæting kl. 16.50 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.

Verkefnið útskýrt.

Skipt í 2-4 manna teymi til að ganga í hús (krakkarnir mega gjarnan vera tilbúin með þetta).

Götum úthlutað á teymi.

Gengið í hús.

Bauk skilað aftur í safnaðarheimilið milli kl. 18.00 og 19.00. 

Krakkarnir vilja gjarnan ganga götur í eigin hverfi og við vitum að þau myndu alveg þiggja skutl fram og til baka úr Akureyrarkirkja sérstaklega í hverfi fjær en önnur.