Aðventukvöld Grundarkirkju kl. 20.00

Aðventukvöld Grundarkirkju í Eyjafjarðarsveit sunnudagskvöldið 7. desember kl. 20.00.
Fjölbreytt og falleg aðventu- og jólatónlist flutt af kirkjukór Grundarsóknar ásamt Gísla Rúnari Víðissyni tenór. 
Stjórnandi Þorvaldur Örn Davíðsson. Anna Richardsdóttir listakona flytur hugleiðingu. Prestur er Jóhanna Gísladóttir og meðhjálpari Hjörtur Haraldsson.
Verið öll hjartanlega velkomin.