Emmausför hefst 9. mars

Námkeiðið Emmaus hefst í safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 9. mars. Kjörið tækifæri fyrir alla sem vilja dýpka þekkingu sína og kynnast kristinni trú frá nýju sjónarhorni. Námskeiðið telur fjórar samverur sem verða næstu fjóra fimmtudaga kl. 20. Umsjón með námskeiðinu hafa prestar Akureyrarkirkju í samstarfi við héraðsprest Eyjafjarðarprófastsdæmis. Ekkert námskeiðsgjald - allir velkomnir! (Sjá nánar í eldri fréttum hér á heimasíðunni, ,,Emmausfarar hittast á fimmtudögum" og einnig í nýútkomnu Safnaðarblaði kirkjunnar).