Lokahátíð barnastarfs Akureyrarkirkju 2024

Ó, blessuð vertu sumarsól - ómaði í lok skemmtilegrar lokahátíðar í Akureyrarkirkju síðastliðinn sunnudag. Þrír kórar enduðu stundina ásamt frábærum hljóðfæraleikurum.

Þetta var svo sannarlega fjölbreytt og skemmtileg stund og vel sótt af bæjarbúum. Yngri og Eldri barnakórar kirkjunnar fengu að láta ljós sitt skína, en einnig kom gestakór úr Reykjavík, Perlukór Háteigskirkju. Stjórnandi þeirra er Erla rut Káradóttir. Deginum áður höfðu kórarnir, ásamt barna - og æskulýðskór Glerárkirkju, tekið upp útvarpsmessu sem var flutt á RUV á Sumardaginn fyrsta. 

Flautunemendur úr Tónlistarskóla Akureyrar léku fyrir okkur, það voru þær Katrín Karlinna Sigmundsdóttir og Ronja Björk. Útgöngulagið lék Gréta Petrína Zimsen á orgelið, en hún stundar orgelnám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hákon Geir Snorrason gítarnemandi úr Tónlistarskóla Akureyrar söng frumsamið lag sitt; Svigrúm við undirleik Ívars Helgasonar, gítarleikara. Ylfa Kristinsdóttir söng lagið Komandi kynslóðir ásamt Ívari Helgasyni og öllum kórunum þremur. Allt voru þetta framúrskarandi tónlistaratriði sem kirkjugestir nutu. Í svona messum er einmitt kjörið að börnin fái að skína sem skærast og njóta sín. Biblíusagan var á sínum stað, "við gefum engan afslátt af henni " sagði sr. Hildur Eir áður en hún flutti hana, en að þessu sinni var það freistingarfrásögnin. Ívar Helgason var svo með eitt skemmtilegt músalag sem hann flutti með leikrænum tilþrifum eins og honum er einum lagið svo kirkjugestir veltumst um úr hlátri. Í það minnsta börnin sem komu sér beint fyirr framan hann. Æskulýðsfulltrúinn, Sonja sagði örlítið frá vetrinum í barnastarfinu og þakkað fyrir góðan vetur og frábæra tíma með öllum krökkunum. Síðar í messunni var hún kvödd með lófaklappi, en næsta vetur mun hún færa sig til í starfi og hætta störfum við Akureyrarkirkju. Hún sagði að þetta væru búin að vera frábær ár í kirkjunni og alger forréttindi að vinna á slíkum stað sem Akureyrarkirkju. Sigrún organisti sagði einnig örlítið frá barnakórastarfinu, og meðal annars frá Danmerkurferðinni í maí. Voru öll börn hvött til að halda áfram að mæta í starfið. 

Eftir stundina í kirkjunni var öllum boðið að gæða sér á grilluðum pylsum. Eins var boðið upp á að læra step-dans hjá Ívari Helgasyni, sem kennir í Steps - dansskólanum. Það var góður hópur sem skellti sér í "sporin" hans og lærðu grunnskrefin í step dansi. 

Klukkan 13.00 hófst Orgelkrakkaævæintýri í kirkjunni en það byggir á frumsömdu ævintýri eftir þá Guðmund Einar og Hákon Geir. Ævintýrið tengdi saman orgelverk sem orgelnemendur á barnsaldri fluttu fyrir kirkjugesti. Notast er við þekkt tónverk, brúður og ýmsa skemmtilega leikmuni. Sigrún Magna og Guðný Einarsdóttir stýra þessu starfi og einnig þessari stund í kirkjunni sem þótti takast afar vel. Var þetta atriði einnig hluti af Barnamenningarhátíð Akureyrar, þar sem hinar ýmsu uppákomur fyrir börn eru um allan bæ og þekja allan aprílmánuð. Það er sannarlega margt og mikið að gerast í barnastarfi Akureyrarkirkju og bjóðum við ávallt ný börn og ungmenni velkomin í hópinn. Við erum þakklát og stolt af börnunum og megi Guð blessa okkur áfram veginn. 

 

Hér koma fleiri myndir með fréttinni