Tónleikar 2022

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

3. - 24. júlí 2022
36. starfsár / 36th year

Sunnudagur/Sunday 3. júlí/July kl. 17/hrs.17 
"Tunglið og ég" Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson flytja lög eftir Michel Legrand. Tónskáldið Michel Legrand (1932-2019) hefði orðið 90 ára núna í febrúar.  Í því tilefni ætla Heiða Árnadóttir söngkona og  Gunnar Gunnarsson píanóleikari að flytja lög eftir hann, en Michel er helst þekktur fyrir að hafa samið söngleiki og tónlist fyrir kvikmyndir. Lögin verða flutt á íslensku og eru textarnir samdir af þeim Árna Ísakssyni og Braga Valdimar Skúlasyni. Á efnisskránni eru meðal annars eftirtalin lög flutt á íslensku: "What are you doing the rest of your life" úr kvikmyndinni "The Happy ending", "You must believe in spring" úr myndinni "The Young Girls of Rochefort"(1967), "Windmills of your mind" úr myndinni "The Thomas Crown affair"(1968), "The summer knows" úr myndinni "Summer of '42"(1971) og "I will wait for you" úr söngleiknum "The Umbrellas of Cherbourg" (1965).

Sunnudagur/Sunday 10. júlí/July kl. 17/hrs.17 
Blood Harmony - Ösp og Örn Eldjárn flytja eigin lög The French composer Michel Legrand (1932-2019) would have turned 90 last February. Systkinin Örn Eldjárn og Ösp Eldjárn hafa bæði starfað í tónlist um langt skeið og höfðu oft rætt um að gera plötu saman, sem varð að veruleika þegar Covid skall á og í kjölfar þess voru þau bæði flutt norður í heimahagana. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem þau höfðu bæði samið en ekki fundið farveg fyrir, fyrr en nú. Þau fengu systur sína, Björk Eldjárn, til að slást í hópinn og þar með var samhljómurinn fullkomnaður.

Sunnudagur/Sunday 17. júlí/July kl. 17/hrs.17 
Íslensk sönglög - Helena G. Bjarnadóttir, söngur, og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, orgelleikari, flytja lög úr ljóðaflokknum “Varpaljóð á Hörpu” eftir Ingibjörgu Azimu við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur. Sönglögin samdi Ingibjörg  í tilefni af 100 ára afmælis ömmu sinnar, Jakobínu Sigurðardóttur. Einnig flytja þær stöllur perlur úr íslenskum söng- og þjóðlögum. 

Sunnudagur/Sunday 24. júlí/July kl. 17/hrs.17 
Duo Barazz skipa saxófónleikarinn Dorthe Højland frá Danmörku og Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti Grafarvogskirkju. Lára og Dorthe hófu samstarf og samspil í Danmörku og hafa haldið fjölmarga tónleika saman, meðal annars hér á Íslandi í Hallgrímskirkju og víðar. Lára hefur meðal annars sérhæft sig í flutningi Barokktónlistar meðan Dorthe er fyrst og fremst jazzari- og þannig varð til nafnið Duo Barazz til. Þegar þessir tveir heimar mætast gerist ýmislegt óvænt og spennandi, og þar að auki er hugmyndaflug þeirra Láru og Dorthe nær engin takmörk sett þegar kemur að lagavali.

Sumartónleikar - Aðgangur ókeypis   
Sommerkoncerter - Gratis adgang   
Summer concerts - Admission free   
Concerts d´été - Entrée gratuite   
Sommerkonzerte - Eintritt frei   

Upplýsingar/information: Jónína Björt Gunnarsdóttir   
Sími/tel: 663-8868    
Tölvupóstur/email: joninabjort@gmail.com   

www.akureyrarkirkja.is/page/sumartonleikar