Sumartónleikar í Akureyrarkirkju kl. 17.00

Sunnudaginn 11. júlí stígur á svið tríóið Gadus Morhua. Þau munu flytja frumsamið efni sem fléttast saman í hljóðheim þar sem barokk mætir íslensku baðstofunni.

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru styrktir af Akureyrarbæ, Sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóði.