Aðalfundur hjá Samhygð kl. 20.00

Aðalfundur Samhygðar í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.

Á fundinum verður lögð áhersla á að ræða hugmyndir um starf samtakanna til næstu ára.

Hvernig getum við best þjónustað syrgjendur? Hvert er hlutverk sorgarsamtaka?
Hvernig getum við stuðlað að samstarfi við aðra aðila á þessu sviði?

Allir velkomnir í kaffi, spjall og gott samfélag.