Á vegum Eyjafjarðarprófastsdæmis hefur verið boðið upp á vinaheimsóknir til aldraðra undanfarin ár.
Þetta starf lætur ekki mikið yfir sér en er smátt og smátt að eflast og aukast. Það er verið að reyna að rjúfa einangrun
fólks og koma til móts við einstaklinga sem hafa lítil tök á því að fara út á meðal fólks, en vilja gjarnan fá
einhvern í heimsókn úr nágreninu. Sjálfboðaliðarnir sem að þessu starfa taka gjarnan að sér vissan einstakling og það
verður samkomulagsatriði þeirra á milli hve oft er komið og hvað er gert, hvort farið er út að ganga, lesið eða bara rabbað saman.
Í heimahúsum og á dvalarheimilum hafa slíkar heimsóknir verið þegnar og tengsl myndast sem báðir aðilar hafa haft ánægju
af. Þeir sem vilja vita meira um þessa starfsemi geta haft samband við umsjónarmann Vinaheimsóknanna, Ástu Garðarsdóttur, í
síma 860-4967 eða á netfangið astaga@simnet.is
Flýtilyklar
Vinaheimsóknir
Á næstunni
mán. 6. febrúar 2012
þri. 7. febrúar 2012
þri. 7. febrúar 2012
þri. 7. febrúar 2012
þri. 7. febrúar 2012
Útfarir
fös. 10.feb. kl. 13:30
Valdemar Gunnarsson (SAJ)






