Kór
Akureyrarkirkju
Í kórnum eru um 70 söngvarar á öllum aldri. Kórinn syngur allur fyrsta sunnudag í hverjum mánuði auk þess að syngja á stórhátíðum. Kórnum er skipt í 4 messuhópa, hver hópur syngur 2-3 sinnum á önn.
Kórinn heldur sjálfstæða tónleika 3-5 sinnum á ári og syngur allt frá aðgengilegum dægurlögum upp í stórvirki kórbókmenntanna.
Kórinn hefur haldið tónleika víða um land, bæði sjálfstæða tónleika sem og í samstarfi við fjölda tónlistarmanna. Hann hefur alloft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Kórinn hefur líka farið í nokkrar tónleikaferðir til útlanda, m.a. til Danmerkur, Kanada, Þýskalands og Slóveníu.
Meðal verkefna vorannarinnar eru kaffitónleikar kórsins sem verða 20. mars, 10. apríl verða tónleikar með verkum Björgvins Guðmundssonar þar sem kórinn mun koma fram ásamt fleiri kórum, 15. maí eru hátíðartónleikar á Kirkjulistaviku, þar sem kórinn flytur íslenska tónlist og í lok maí fer kórinn í ferð til austurlands.
Æfingar kórsins eru á þriðjudögum kl. 20:00-22:00.
Stjórnendur eru Eyþór Ingi Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Stúlknakór Akureyrarkirkju
Í kórnum eru stúlkur á aldrinum 13-16 ára. Kórinn tekur virkan þátt í fjölbreyttu helgihaldi. Kórinn syngur reglulega á tónleikum með landsþekktum listamönnum sem og á sjálfstæðum tónleikum. Lögð er mikil áhersla á félagslega þátt starfsins, mikið um námskeið, óvæntar uppákomur o.fl.
Kórinn hefur farið á 2-3 ára fresti í tónleikaferð til Evrópu, til Svíþjóðar, Finnlands, Slóveníu, Austurríkis og Þýskalands.
Æfingar kórsins eru á fimmtudögum kl. 16:00-17:00.
Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.

Barnakórar Akureyrarkirkju
Barnakórarnir eru tveir, yngri kórinn er fyrir börn
úr 2.-4. bekk grunnskóla og sá eldri er fyrir börn úr 5.-7. bekk. Áhersla er lögð á rétta raddbeitingu og skemmtilegt
andrúmsloft. Kórarnir syngja við fjölskylduguðsþjónustur ásamt því að syngja við ýmsar uppákomur víða
í bænum.
Æfingar korsins eru á fimmtudögum, yngri kórinn kl. 15:00-16:00 og eldri kórinn kl. 16:00-17:00.
Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Kammerkórinn Ísold
Kórinn var stofnaður haustið 2009 og í honum eru ungar konur á aldrinum 17-26 ára. Hlutverk kórsins er fyrst og fremst að halda tónleika á vegum kirkjunnar. Lögð er áhersla á krefjandi verkefni og vandaðan flutning. Kórinn hefur þegar vakið mikla athygli vegna fágaðs tónlistarflutnings. Kórinn hélt í desember eftirminnilega tónleika ásamt Kammerkórnum Hymnodiu. Framundan eru tónleikar á Kirkjulistaviku, sunnudaginn 8. maí kl. 16:00, þar sem kórinn mun flytja þekkta dægurtónlist í vönduðum útsetningum.
Æfingar kórsins eru á þriðjudögum kl. 16:30-18:00.

Hymnodia
Hymnodia er tónleikakór, skipaður 17 vönum söngvurum. Markmið kórsins er að efla íslenska kórtónlist með því að halda reglulega tónleika með verkum íslenskra tónskálda. Einnig einbeitir kórinn sér að verkum frá barokktímanum.
Kórinn tók þátt í mörgum afar stórum verkefnum veturinn 2009-2010, hélt fjölda tónleika innanlands sem og í Sviss. Framundan er flutningur á Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands eftir Karólínu Eiríksdóttur eftir konsepti Ólafs Ólafssonar og Libiu Castro. Verkið verður flutt í Hafnarhúsinu 12. febrúar nk. Auk kórsins koma fram þau Bergþór Pálsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir og Gunnlaugur Torfi Stefánsson. Verkið verður einnig tekið upp í sjónvarpssal og verður því sjónvarpað 13. og 16. febrúar. 13. mars heldur kórinn tónleika í Langholtskirkju, á föstudaginn langa heldur kórinn miðnæturtónleika í Akureyrarkirkju og 12. maí verða tónleikar haldnir á Kirkjulistaviku.