Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Samræðukvöld um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann.

Þjóðkirkjan stendur fyrir samræðukvöldum í Glerárkirkju á miðvikudögum kl. 20.00 í október og nóvember. Tilgangurinn með þeim er að skapa vettvang til samtals um kirkju og kristni og eru allir sem áhuga hafa velkomnir til að taka þátt í samtalinu.

Hvert kvöld hefst með helgistund og tveggja manna tali klukkan átta. Þar ræða tveir einstaklingar efni kvöldsins. Í kringum níuleytið er tekið stutt kaffihlé áður en að almennar umræður hefjast.

Að þessu sinni leggjum við aðallega bók páfa ,,Jesús frá Nasaret“ til grundvallar umræðunni. Í bókinni birtist áhugaverð samfélagsrýni fræðimannsins Josephs Ratzinger, en þetta er fyrsta bók hans eftir að hann settist á páfastól sem Benedikt XVI. Bókin er innlegg í samtalið á milli samfélagsins og kristninnar.

Á þessum átta samræðukvöldum er leitast við að kalla til samtals um helgustu rit kristninnar, guðspjöllin. Meðal annars er horft til sögunnar, spurt um raunveruleikatengingar, málefnum kirkju velt upp, guðfræðin krufin til mergjar, rýnt í tengsl leikhúss og helgihalds, sjóðir bókmennta og lista nýttir til samtals og tengsl guðspjallanna við menningu, siðferði og samfélag skoðuð.

Dagskrárlok eru hvert kvöld klukkan tíu.
Sjá nánar á http://kirkjan.is/naust/fr%c3%a6%c3%b0sla/samraedukvold-um-truna-a-krist/

Umsjón með kvöldunum hafa Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju og sr. Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning