Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Fermingarstarf

Við upphaf skólaársins hefst einnig fermingarfræðslan í kirkjunum. Þeir unglingar sem fermast í Akureyrarkirkju næsta vor munu mæta í fræðsluna á þriðjudögum eftir skólalok. Hóparnir verða þrír og mæta þriðja hvern þriðjudag tvær klukkustundir í senn og verður starfið byggt upp með svipuðum hætti og undanfarin ár. Börnin fá hressingu í Safnaðarheimilinu og síðan fer fræðslan fram bæði þar og í kirkjunni, en sr. Svavar A. Jónsson hefur tekið saman fræðsluefni tengt gluggum Akureyrarkirkju sem nú verður kennt í fjórða sinn.
Sem fyrr er fræðslan að mestu leyti í höndum presta kirkjunnar en ýmsir aðrir verða fengnir til að ræða við fermingarbörnin um efni sem tengjast kristinni trú og kristnum lífsgildum.
Hjálparstarf kirkjunnar verður kynnt rækilega meðal fermingarbarnanna og öll fermingarbörn fengin til að taka virkan þátt í því starfi með söfnunarátaki sem fer fram um allt land.
Fermingarbörnin verða nokkrum sinnum í vetur boðuð sérstaklega til messu en auk þess eru foreldrar og forráðamenn þeirra eindregið hvött til að fylgjast með því að börnin sæki messur reglulega og sömuleiðis til að koma sjálf með börnum sínum í kirkju.

Hópaskipting í fermingarfræðslu, á þriðjudögum, haustið 2011:

Hópur I:  Brekkuskóli kl. 15.30-17.30
(20. sept., 11. okt., 1. nóv., 29. nóv  2011)
(17. jan., 7. feb., 28. feb 2012)

Hópur II:  Lundarskóli kl. 15.30-17.30
(27. sept., 18. okt., 15. nóv., 6. des 2011)
(24. jan., 14. feb., 6. mars 2012)

Hópur III:  Oddeyrarskóli og Naustaskólikl. 15.30-17.30
(4. okt., 22. nóv., 13. des 2011., 10. janúar 2012)
(31. jan., 21. feb., 13. mars 2012)


Söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar fer fram þriðjudaginn 8. nóvember
og þann dag mæta allir hóparnir í Safnaðarheimilið.

Fermingardagar 2012:  
Laugardagurinn 31. mars, Pálmasunnudagur 1. apríl, laugardagurinn 12. maí, laugardagurinn 26. maí,  Hvítasunnudagur 27. maí og laugardagurinn 2. júní .
Fermt verður kl. 10.30.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning